Grænfáninn í leikskólanum Bergheimum

Miðvikudaginn 10.júní kom Margrét Hugadóttir frá Landvernd og afhenti leikskólanum Bergheimum þriðja grænfánann. Af því tilefni komu börn og starfsfólk saman úti á leikskólalóð, börnin sungu lagið "Vertu til er vorið kallar á þig" og Margrét var með grænfánaleikfimi sem allir tóku þátt í.

Í vetur bjuggu börnin til líkan af Þorlákshöfn í vetur og komu öll börnin á leikskólanum að gerð þess. Líkanið tengist grænfánaverkefni þar sem þemað var að þessu sinni átthagar og landslag.

Til hamingju Bergheimar!

líkan af Þorlákshöfn

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?