Hægt að skoða Hvalinn um helgina

Sveitarfélagið Ölfus hefur tekið ákvörðun um að ráðst í urðun hvalsins sem rak að í fjörunni við Þorlákshöfn eftir helgi. Er það gert til að gefa áhugasömum færi á að skoða dýrið í blíðunni um helgina. Veðurspá er með besta móti og vill Sveitarfélagið Ölfus hvetja heimamenn, íbúa á höfuðborgarsvæðinu og nágrannabyggðum til að gera sér dagamun með því að skoða hvalinn í þessu stórkostlega umhverfi sem svo heppilega vill til að er afar aðgengilegt. Þá er ekki úr vegi að renna við í sundlauginni eftir góðan göngutúr í fjörunni.

Áhugasömum er bent á bílastæði við golfvöllinn en þaðan er örstuttur gangur að hvalnum.

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?