Halldór Sigurðsson heiðraður með menningarverðlaunum

Halldór Sigurðsson með menningarverðlaunin ásamt Magnþóru Kristjánsdóttur, formanni menningarnefndar
Halldór Sigurðsson með menningarverðlaunin ásamt Magnþóru Kristjánsdóttur, formanni menningarnefndar
Á setningarhátíð Hafnardaga afhenti formaður menningarnefndar, Halldóri Sigurðssyni, skólastjóra, menningarverðlaun Ölfuss 2011

Á opnunarhátíð afmælishátíðar Þorlákshafnar, miðvikudaginn 1. júní voru í fjórða skipti veitt menningarverðlaun Sveitarfélagsins Ölfuss. Það var skólastjóri Grunnskóla Þorlákshafnar, Halldór Sigurðsson, sem hlaut viðurkenninguna að þessu sinni. Magnþóra Krisjánsdóttir, formaður menningarnefndar afhenti verðlaunin og nefndi í ræðu sinni að Halldór hefur hvatt börn og ungmenni til listsköpunar langt umfram það sem ætlast má til af skólastjórnanda. Hann hefur leikstýrt fjölda leiksýninga þar sem tónlist skipar oft stóran sess, hann hefur aðstoðað við uppsetningu á söngleikjum í tengslum við Tóna við hafið undanfarin ár og hann mætir yfirleitt á alla tónleika Tónlistarskólans sem er mikil hvatning fyrir nemendur. Það var greinilegt að Halldór átti alls ekki von á þessu og klökknaði þegar hann þakkaði fyrir sig. 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?