Heilsuvika Evrópu í Ölfusi er að baki og tókst hún afar vel. Fjölbreytt dagskrá, gott samstarf og mikil þátttaka einkenndu vikuna en áætlað er að um 550 manns á aldrinum 1–95 ára hafi tekið þátt í verkefnum og viðburðum vikunnar.
Undir yfirskriftinni„Hreyfðu þig fyrir þig“ var lögð áhersla á að hreyfing, heilsa og vellíðan væri fyrir alla. Boðið var upp á fjölbreytta viðburði og verkefni fyrir alla aldurshópa, meðal annars í samstarfi við íþróttafélög, skólasamfélagið, félagsstarf eldri borgara og fleiri aðila. Sérstök áhersla var einnig lögð á fjölskylduna og að finna einfaldar leiðir til að hreyfa sig saman í daglegu lífi.
Mikið líf var í Þorlákshöfn um helgina enda veðrið með besta móti og fjölmargir nýttu tækifærið til útivistar og hreyfingar.
Sveitarfélagið Ölfus þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg við skipulagningu og framkvæmd vikunnar. Ekki síður færum við öllum þeim sem tóku þátt kærar þakkir fyrir frábæra þátttöku og góða stemningu.
Takk fyrir frábæra Heilsuviku og höldum áfram að hreyfa okkur fyrir okkur! 💚

Fræðsla um næringu fyrir eldra fólk
Fjölbreytt dagskrá var í skólunum m.a. Ólympíuhlaupið

Styrktar og þolþjálfun í íþróttasalnum