Hreinsunarátak 2. maí til - 11. maí - dreifbýli!

Líkt og undanfarin ár eru íbúar í Sveitarfélaginu Ölfusi hvattir til að taka til á lóðum sínum og jörðum. Fjarlægja skal hluti sem þeim tilheyra og eru utan lóðarmarka.

Sérstök hvatning er til fyrirtækja að snyrta vel í kringum sig.

 

Til að auðvelda íbúum í dreifbýlinu að losa sig við sorp verða settir gámar við Hjarðarból, Kirkjuferju og á Læk til að íbúar í dreifbýli Ölfuss geta farið þangað og losnað við almennt sorp og timbur í gáma sem verða staðsettir þar.

 

Munið að flokka ruslið!

 

Allir eru hvattir til að taka til hendinni þessa daga og tína laust rusl í kringum sig, gaman væri ef íbúar myndu líka hreinsa út fyrir sínar jarðir og lóðir, td. utan við og meðfram girðingum, vegum og gangstéttum þar sem það á við.

 

 

Vakin er athygli á opnunartíma gámasvæðisins í Þorlákshöfn:

Mánudagar - fimmtudagar frá kl 14:00 - 17:00

Föstudagar frá kl 13:00 – 18:00

Laugardaga er opið frá 10:00 - 14:00.

Lokað er á sunnudögum.

 

Munið að flokka ruslið!

 

Athugið að timburstaurar mega ekki fylgja girðinganeti í járnagáminn!

Ef mikið er af járni, getur sveitarfélagið séð um að láta sækja járnið.

 

Ekki er heimilt að losa rusl annarstaðar en á gámasvæði!

 

Í kjölfar hreinsunarátaksins munu starfsmenn Þjónustumiðstöðvarinnar fjarlægja lausamuni, númerslausar bifreiðar, bílflök og sambærilega hluti á almannafæri. Einnig verða hlutir sem valdið geta skaða, mengun eða lýti á umhverfinu fjarlægðir. Þetta gildir jafnt um smærri sem stærri hluti. Í þeim efnum er stuðst við reglugerðir nr. 737/2003 um meðhöndlun úrgangs og 941/2002 um hollustuhætti.

 

Hreint land fagurt land!

 

Nánari upplýsingar veitir umhverfisstjóri Sveitarfélagsins Ölfus,

david@olfus.is eða í síma 899-0011.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?