Hreinsunarátak 3. - 9. maí nk.

Ráðhús Ölfuss 2006
Ráðhús Ölfuss 2006
Hreinsunarátak
Líkt og undanfarin ár eru íbúar í dreifbýli og þéttbýli, fyrirtæki og eigendur lóða/lendna í Sveitarfélaginu Ölfusi hvattir til að taka til á lóðum sínum.  Fjarlægja skal hluti sem þeim tilheyra og eru utan lóðarmarka.

   

Hreinsunarátak  3. – 9. maí n.k.

 

 

Líkt og undanfarin ár eru íbúar í dreifbýli og þéttbýli, fyrirtæki og eigendur lóða/lendna í Sveitarfélaginu Ölfusi hvattir til að taka til á lóðum sínum. Fjarlægja skal hluti sem þeim tilheyra og eru utan lóðarmarka.

 

Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar munu aðstoða við hreinsunina með því að afhenda sorppoka og lána kerru til að flytja ruslið. Ef nauðsyn krefur geta starfsmenn aðstoðað við að fjarlægja ruslið, vinsamlega hafið þá samband við Þjónustumiðstöð í síma 483-3803 eða 862-0920

 

Vakin er athygli á opnunartíma gámasvæðana í Þorlákshöfn og Hrísmýri:

Mánud.-föstud. 13:00 - 18:00,  laugardag 13:00 - 16:00

 

 

Munið að flokka ruslið!

 

Athugið að staurar mega ekki fylgja girðinganeti í járnagáminn!

 

Ef mikið er af járni, getur sveitarfélagið útvegað járnagám til fyrirtækja og bænda, en þá eru gefnir 3 dagar til að setja í gáminn.



Ekki er heimilt að losa rusl annarstaðar en á gámasvæði!

 

 

Í kjölfar hreinsunarátaksins munu starfsmenn áhaldahúss fjarlægja lausamuni, númerslausar bifreiðar, bílflök og sambærilega hluti á almannafæri. Einnig verða hlutir sem valdið geta skaða, mengun eða lýti á umhverfinu fjarlægðir. Þetta gildir jafnt um smærri sem stærri hluti. Í þeim efnum er stuðst við reglugerðir nr. 737/2003 um meðhöndlun úrgangs og 941/2002 um hollustuhætti.

 

Hreint land fagurt land!

 

Nánari upplýsingar veitir umhverfisstjóri Ölfuss í síma 862-0920.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?