Hreinsunarátak 6. maí til - 16. maí!

Herdísarvík
Herdísarvík

Hreinsunarátak 6. maí til - 16. maí!

 

Líkt og undanfarin ár eru íbúar í Sveitarfélaginu Ölfusi hvattir til að taka til á lóðum sínum og jörðum. Fjarlægja skal hluti sem þeim tilheyra og eru utan lóðarmarka.

Sérstök hvatning er til fyrirtækja að snyrta vel í kringum sig.

 

Til að auðvelda íbúum í dreifbýlinu að losa sig við sorp hefur verið gert samkomulag eins og undanfarin ár við bæina Sunnuhvol og Læk um það að íbúar í dreifbýli Ölfuss geta farið þangað og losnað við almennt sorp og timbur í gáma sem verða staðsettir þar.

 

Munið að flokka ruslið!

 

Allir eru hvattir til að taka til hendinni þessa daga og tína laust rusl í kringum sig, gaman væri ef íbúar myndu líka hreinsa út fyrir sínar jarðir og lóðir, td. utan við og meðfram girðingum, vegum og gangstéttum þar sem það á við.

 

Vakin er athygli á opnunartíma gámasvæðisins í Þorlákshöfn:

Alla virka daga frá kl 13:00 - 18:00.

Laugardaga er opið frá 12:00 - 16:00.

Lokað er á sunnudögum.

 

Munið að flokka ruslið!

 

Athugið að timburstaurar mega ekki fylgja girðinganeti í járnagáminn!

Ef mikið er af járni, getur sveitarfélagið séð um að láta sækja járnið.

 

Ekki er heimilt að losa rusl annarstaðar en á gámasvæði!

 

Í kjölfar hreinsunarátaksins munu starfsmenn Þjónustumiðstöðvarinnar fjarlægja lausamuni, númerslausar bifreiðar, bílflök og sambærilega hluti á almannafæri. Einnig verða hlutir sem valdið geta skaða, mengun eða lýti á umhverfinu fjarlægðir. Þetta gildir jafnt um smærri sem stærri hluti. Í þeim efnum er stuðst við reglugerðir nr. 737/2003 um meðhöndlun úrgangs og 941/2002 um hollustuhætti.

 

Hreint land fagurt land!

 

Nánari upplýsingar veitir umhverfisstjóri Sveitarfélagsins Ölfus,

david@olfus.is eða í síma 899-0011.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?