Hreinsunarátak í dreifbýli Ölfuss

Hreinsunarátak  7. maí til - 25. maí!

Líkt og undanfarin ár eru íbúar í Sveitarfélaginu Ölfusi hvattir til að taka til á lóðum sínum og jörðum. Fjarlægja skal hluti sem þeim tilheyra og eru utan lóðarmarka.  Sérstök hvatning er til fyrirtækja og að snyrta vel í kringum sig.

Til að auðvelda íbúum í dreifbýlinu að losa sig við sorp hefur verið gert samkomulag við bæina Sunnuhvol og Læk um að íbúar í dreifbýli Ölfuss geta farið þangað og losnað við almennt sorp og timbur í gáma sem verða staðsettir þar.

Munið að flokka ruslið!

Allir eru hvattir til að taka til hendinni þessa daga og tína laust rusl í kringum sig, gaman væri ef íbúar myndu líka hreinsa út fyrir sínar jarðir og lóðir, td. utan við og meðfram girðingum, vegum og gangstéttum þar sem það á við.

Ef nauðsyn krefur geta starfsmenn Þjónustumiðstöð Ölfuss aðstoðað öryrkja og eldri borgara við að fjarlægja ruslið, vinsamlega hafið þá samband við Þjónustumiðstöð í síma 483-3803, eða 899-0011.

Vakin er athygli á opnunartíma gámasvæðisins í Þorlákshöfn:
Mánud.- fimmtud. 15:00 - 18:00 og föstud. 13:00 – 18:00. 
Laugardaga er opið frá 12:00 - 16:00.
Lokað er á sunnudögum.

Munið að flokka ruslið!

Athugið að timburstaurar mega ekki fylgja girðinganeti í járnagáminn!
Ef mikið er af járni, getur sveitarfélagið séð um að láta sækja járnið. 

Ekki er heimilt að losa rusl annarstaðar en á gámasvæði!

Í kjölfar hreinsunarátaksins munu starfsmenn Þjónustumiðstöðvarinnar fjarlægja lausamuni, númerslausar bifreiðar, bílflök og sambærilega hluti á almannafæri. Einnig verða hlutir sem valdið geta skaða, mengun eða lýti á umhverfinu fjarlægðir. Þetta gildir jafnt um smærri sem stærri hluti. Í þeim efnum er stuðst við reglugerðir nr. 737/2003 um meðhöndlun úrgangs og 941/2002 um hollustuhætti.

Hreint land fagurt land!

Nánari upplýsingar veitir umhverfisstjóri Sveitarfélafsins Ölfus,
david@olfus.is eða í síma 899-0011.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?