Húsnæðissamvinnufélagið Elliði auglýsir til sölu búseturétt á Sunnubraut

Húsnæðissamvinnufélagið Elliði auglýsir til sölu búseturétt í parhúsi sem staðsett er í byggðarkjarna eldri borgara í Þorlákshöfn.

Sunnubraut 2 í Þorlákshöfn

Til sölu er búseturéttur í þriggja herbergja íbúð í parhúsi.
Í heildina er eignin 122,5 fm. og þar af bílskúr 28,6 fm.
Húsið var byggt árið 2004 og er staðsett í rólegum og notalegum byggðarkjarna eldri borgara í Þorlákshöfn.

Búseturétturinn kostar 3.000.000 kr. og búsetugjald 145.000 kr. á mánuði.
Til viðbótar þarf að greiða rafmagn, hita og fasteignagjöld.
Aldursskilyrði 60+.

Bæði félagsmenn og utanfélagsmenn geta keypt búseturéttinn en aldursskilyrði eru 60 ára og eldri.
Við úthlutun verður horft til þess hve lengi einstaklingar sem sækja um hafa verið í félaginu.
Ef enginn félagsmaður sækir um verður búseturétturinn seldur til utanfélagsmanna.

Íbúðin er laus 1. febrúar 2019 og skulu umsóknir berast félaginu fyrir 3. desember nk.

Þeir sem hafa áhuga á að kaupa búseturéttinn skulu senda inn umsóknir á Sveitarfélagið Ölfus, Hafnarberg 1, 815  Þorlákshöfn eða á netfangið olfus@olfus.is.
Nánari upplýsingar veitir Valur Rafn Halldórsson í síma 868-1895 eða valurrafnh@gmail.com.  

 

                                                                                 Stjórn Húsnæðissamvinnufélagsins Elliða

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?