Íbúar Ölfuss

Íbúar Ölfuss!

Þann 1. apríl 2019 tók Kubbur ehf. við sorphirðunni í sveitarfélaginu af Gámaþjónustunni ehf. sem hefur annast sorphirðuna sl. 5 ár.
Eftir undangengið útboð sem verkfræðistofan EFLA sá um var ákveðið að semja við Kubb ehf til næstu 5 ára.
Mun Kubbur einnig sjá um að þjónusta gámasvæðið.

Inni á heimasíðu Ölfuss https://www.olfus.is/is/thjonustan/umhverfismal/sorphirda er komið nýtt sorphirðudagatal.
Sorphirðan verður með svipuðu móti og hefur verið en fyrsti sorphirðudagur Kubbs verður mánudaginn 8. apríl n.k  og verður þá hirt almennt sorp og lífrænt.
Vikuna á eftir mánudaginn 15. apríl n.k munu starfsmenn fyrirtækisins hirða blá- og græntunnur.

Aukin flokkun.                                                                                                                                                         
Sú nýbreytni verður tekin upp núna að byrjað verður að hirða málma líka og á að setja þá ofan í grænu tunnuna með plastinu.

Hvernig á að flokka:

Blá tunna: Bylgjupappír, sléttur pappír, blöð og fernur.

  • Bylgjupappi: Allur bylgjupappi, til dæmis pappakassar, pitsukassar og þvottaefniskassar. Bylgjupappi þekkist af bylgjum sem sjást ef brúnir hans eru skoðaðar.
  • Það er í lagi að bylgjupappinn sé áprentaður, plasthúðaður og litsterkur.
  • Sléttur pappi: Það eru umbúðir utan af morgunkorni, eggjabakkar, eldhús- og salernishólkar og kexpakkar.                                                                                        Mikilvægt er að fjarlægja allar matarleifar og plastumbúðir sem kunna að vera inni í umbúðunum.
  • Blöð: Dagblöð, tímarit, allskonar auglýsingapésar, umslög, skrifstofupappír og svo framvegis.
    Það þarf ekki að hreinsa heftivír úr pappír.
  • Fernur er nauðsynlegt að skola til að forðast lyktarmengun og brjóta svo allar umbúðir saman svo þær taki minna pláss.

Græn tunna: Litað plast, glært plast, stíft plast og málmar.

  • Litað plast: Litað og áprentað plast, t.d. utan af kók-kippum, brauði, sælgæti, salernispappír, eldhúspappír og svo innkaupapokar.
  • Glært plast: Allt plast sem er glært, t.d. innan úr morgunkornspökkum og utan af kexi. 
  • Stíft plast: Í þennann flokk mega fara plastbakkar undan matvælum, plast undan drykkjum t.d söfum. Dósir undan skyri, jógúrt, mysingi, sýrðum rjóma, mayonnaise, ís, sósum, ostum og svo lok og tappar.
  • Brúsar undan sjampói, hárnæringu, uppþvottalegi, hreinsiefnum o.fl.

Umbúðirnar þurfa að vera tómar. Áríðandi er að skola þær svo ekki komi ólykt. Æskilegt er að lok og tappar séu ekki á umbúðum en fylgi með í flokkunarpokanum. 

  • Málmar: Niðursuðudósir, lok, tappar, álpappír, álbox af sprittkertum og margir aðrir smáhlutir úr málmum fara í þennan flokk. Ekki þarf að fjarlægja bréfmiða af dósum, plasttappa eða plasthandföng. Málmur þarf samt að vera í meirihluta. 

Ganga skal tryggilega frá eggjárni sem sett er í grænu tunnuna svo það skaði engan við flokkun.                                                                                                           Alla stærri málmhluti t.d. potta, pönnur, garðverkfæri, sláttuvélar o.fl. skal fara með á gámasvæðið.

Brúna ílátið: Lífrænn úrgangur – hent í maíspoka.

Í brúna ílátið fer allur lífrænn úrgangur sem fellur til á heimilum t.d. allar matarleifar, brauð og kökuafgangar, eggjaskurn, kaffikorgur, kaffisíur og tepokar, ávextir, grænmeti, kjöt- og fiskafgangar, afskorin blóm og plöntur. 

ATHUGIÐ! SÚPUR, SÓSUR OG SOÐ MÁ EKKI SETJA MEÐ LÍFRÆNUM ÚRGANGi.

Þegar nýir aðilar koma inn í svona stórt verkefni geta orðið byrjunarörðugleikar og óskum við eftir því við íbúa að þeir sýni því skilning.

Nánari upplýsingar í síma 899-0011 eða david@olfus.is

Davíð Halldórsson
umhverfisstjóri Ölfuss

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?