Íbúðalánasjóður auglýsir íbúðir til leigu

Merki Íbúðalánasjóðs
Merki Íbúðalánasjóðs
Íbúðir til leigu
Eignirnar eru auglýstar á  http://fasteignir.visir.is/  og 

og http://mbl.is/leiga/

Eignir sem Íbúðalánasjóður er með í auglýsingu til útleigu má sjá á  http://fasteignir.visir.is/  og http://mbl.is/leiga/  .   Verið er að undirbúa fleiri eignir til útleigu og má búast við að sjóðurinn auglýsi næst um miðjan eða lok nóvember.

 

Í þetta sinn eru auglýstar 22 eignir og er umsóknarfrestur í viku eða til og með 30. október n.k. og verða þær leigðar út frá 15. nóv eða fyrr eftir samkomulagi.

 

Eignirnar eru auglýstar á  http://fasteignir.visir.is/  og http://mbl.is/leiga/ og þar er hægt að sækja um þær með því að senda inn umsókn á leiga@ils.is og þar á eingöngu að setja nafn eignar í subject, nafn umsækjanda, kt. og símanúmer í mailið.  Eftir 30. október er svo unnið úr umsóknum og þeim öllum svarað strax.

Á meðan eignirnar eru auglýstar er ekki hægt að skoða þær nema á þeim myndum sem eru í auglýsingunni á netinu en að sjálfsögðu fær fólk að skoða eignina ef það er dregið út og hafa þá kost á að afþakka eignina ef hún hentar ekki.

 

Hér má sjá úthlutunarreglur sjóðsins : http://www.ils.is/einstaklingar/ibudir

 

 

  

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?