Íslensk náttúra og sveitin á sýningu

Myndlistasýning Ólafar Haraldsdóttur
Myndlistasýning Ólafar Haraldsdóttur
Ný myndlistasýning á Bæjarbókasafni Ölfuss

Ólöf Haraldsdóttir sýnir sínar myndir í Gallerí undir stiganum

Ólöf Haraldsdóttir frá Breiðabólstað í Ölfusi opnaði myndlistasýningu í Gallerí undir stiganum fimmtudaginn 4. maí. Á sýningunni eru olíu- og vatnslitamyndir þar sem íslensk náttúra og sveitarlífið er helsta myndefnið. Sýningin stendur yfir til 27. maí og er opin á opnunartíma bókasafnsins.

Í júní verða nokkrar myndir eftir Ólöfu auk mynda eftir Bjarna Joensen sendar til Finnlands þar sem þær verða á samsýningu listamanna frá öllum vinabæjum Þorlákshafnar og Ölfuss.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?