Íslensku menntaverðlaunin - tilnefningar

Viðurkenning fyrir framúrskarandi skólastarf, menntaumbætur og þróunarverkefni

Embætti forseta Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneyti, samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðuneyti, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa, Kennaradeild Háskólans á Akureyri, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands (listkennsludeild og tónlistardeild), Menntamálastofnun, Mennta­vísindasvið Háskóla Íslands, Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök áhugafólks um skólaþróun og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar hafa tekið höndum saman um að veita árlega viðurkenningu fyrir framúrskarandi skólastarf eða aðrar umbætur í menntamálum. Verðlaunin heita Íslensku menntaverðlaunin.

Verðlaunin njóta stofnstyrkja sem mennta- og menningarmálaráðuneytið og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti hafa veitt.

Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Verðlaunin verða veitt í þremur aðalflokkum:

  1. Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur. Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki, til skóla eða annarrar menntastofnunar, sem stuðlað hefur að menntaumbótum er þykja skara fram úr.
  2. Framúrskarandi kennari. Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki til kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr.
  3. Framúrskarandi þróunarverkefni. Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefnum sem standast ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Til greina koma verkefni sem tengjast skóla- eða frístundastarfi, listnámi eða öðru starfi með börnum og ungmennum og hafa ótvírætt mennta- og uppeldisgildi.

Að auki er veitt hvatning til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr.

Tilnefningar skal senda með því að nýta þessi skráningarform:

Einnig má senda tilnefningarnar í pósti

Samtök áhugafólks um skólaþróun
Pósthólf 30
270 Mosfellsbær
(Merkið umslagið: Íslensku menntaverðlaunin)

Tilnefningum skal fylgja skriflegur rökstuðningur.

Tilnefningum um þróunarverkefni í C-flokki skulu fylgja gögn sem gera kleift að leggja faglegt mat á verkefnið (skýrslur, vefsíður, kvikmyndir, greinar).

Sama verk eða starf má aðeins tilnefna í einum flokki.

Tilnefningar skulu hafa borist fyrir 1. júní ár hvert.

Viðurkenningarráð (sjá hér) velur þrjár til fimm tilnefningar í hverjum flokki til kynningar á alþjóðadegi kennara 5. október.

Stefnt er að því að veita verðlaunin við hátíðlega athöfn í nóvember.

Sjá nánar um verðlaunin í samkomulagi þeirra sem að þeim standa.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?