Íþróttamaður ársins í Sveitarfélaginu Ölfusi

ithrottamadurolfus_2011-15
ithrottamadurolfus_2011-15
Íþróttamaður ársins í Ölfusi
Eva Lind Elíasdóttir frjálsíþrótta- og knattspyrnukona var kjörin íþróttamaður ársins 2011.

 

Íþróttamaður ársins í Sveitarfélaginu Ölfusi.

Íþrótta – og æskulýðsnefnd  Sveitarfélagsins Ölfuss stóð fyrir árlegri verðlaunaafhendingu til íþróttamanna sem stóðu sig vel í íþrótt sinni á árinu 2011. Einnig var  tilkynnt um  kjör á íþróttamanni ársins. Verðlaunaafhendingin fór fram í Versölum.

 

Íþróttamaður ársins 2011 var kjörinn Eva Lind Elíasdóttir frjálsíþrótta og knattspyrnukona.

Eva Lind æfði með úrvals og afrekshóp FRÍ á árinu. Í frjálsum  snéri hún sér nánast alfarið að kúluvarpi í byrjun árs eftir að hafa sett íslandsmet seint á árinu á undan.

Eva Lind sigraði nánast öll kastmót sem hún keppti í og allar kúluvarpskeppnir á Íslandi sem hún keppti í fyrir 22 ára og yngri en hún er aðeins 16 ára gömul.

Hæst ber að nefna, Héraðsmeistari fullorðinna, Landsmótsmeistari og Íslandsmeistaratitil í 15-16 ára flokki.

Einnig var Eva Lind valin í U- 17 ára landslið Íslands í knattspyrnu sem tók þátt í Evrópumeistaramóti sem haldið var í Austurríki í október síðastliðnum. Þar stóð liðið sig afskaplega vel og skoraði Eva Lind m.a. eitt mark.

 

Þeir íþróttamenn sem voru í kjöri til íþróttamanns ársins 2011 voru.

Aðalbjörg Ýr Sigurbergsdóttir     fyrir góðan árangur í fimleikum

Ingvar Jónsson                              fyrir góðan árangur í golfi

Þorkell Þráinsson                          fyrir góðan árangur í knattspyrnu

Baldur Þór Ragnarsson                fyrir góðan árangur í körfuknattleik

Eva Lind Elíasdóttir                      fyrir góðan árangur í frjálsum íþróttum

Axel Örn Sæmundsson               fyrir góðan árangur í badminton

Þorsteinn Helgi Sigurðsson         fyrir góðan árangur í akstursíþróttum

Hjörtur Már Invarsson                 fyrir góðan árangur í sundi

Þorsteinn Guðnason                     fyrir góðan árangur í hestaíþróttum

Arnar Bjarki Sigurðsson               fyrir góðan árangur í hestaíþróttum

 

 

 

Einnig heiðraði íþrótta – og æskulýðsnefnd 10 ungmenni sem voru landsliðsmenn, urðu Íslandsmeistarar eða bikarmeistarar á árinu.

Þeir Þorsteinn Már Ragnarsson, Emil Karel Einarsson, Erlendur Ágúst Stefánsson og Oddur Ólafsson fengu allir viðurkenningar fyrir að hafa spilað með yngri landsliðum Íslands í körfuknattleik.

Styrmir Dan Steinunnarson og Eva Lind Elíadóttir fengu viðurkenningar fyrir Íslandsmeistaratitla í frjálsum íþróttum.

Svavar Berg Jóhannson og Eva Lind Elíasdóttir fengu viðurkenningar fyrir að hafa spilað með yngri landsliðum Íslands í Knattspyrnu.

Guðmundur Karl Guðmundsson fékk viðurkenningu fyrir að hafa spilað með landsliði Íslands í futsal.

Glódís Rún Sigurðardóttir fékk fyrir Íslandssmeistaratitla og landsmótsmeistaratitill í hestaíþróttum.

 Arnar Bjarki Sigurðsson fékk  viðurkenningu fyrir að hafa keppt með Íslenska landsliðinu í hestaíþróttum á heimsmeistaramóti.

 

 

 

 

 

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?