Skrúðgarðurinn er einstaklega fallega skreyttur jólaljósum í ár
Bráðum koma blessuð jólin
Aðventudagatal Ölfuss er tilbúið og fullt af spennandi viðburðum fyrir alla aldurshópa. Þar má finna yfirlit yfir helstu viðburði, sýningar, leiki og samverustundir sem félög, skólar, stofnanir og þjónustuaðilar standa fyrir á aðventunni. Aðventudagatalið 2026
Ölfusið er þegar farið að klæðast jólabúningi og er sannarlega ánægjulegt að sjá þann metnað og þá sköpunargleði sem íbúar leggja í jólaskreytingarnar. Hver gata og hvert heimili setur sinn svip á umhverfið og lýsir upp skammdegið með töfrandi stemningu sem gerir aðventuna enn ánægjulegri.
Í anda þess munu íbúar einnig fá tækifæri til að tilnefna sérstaklega fallega skreytt íbúðarhús á vefsíðu Ölfuss og taka þátt í kosningu um vinsælasta jólahús sveitarfélagsins. Við hvetjum alla til að fylgjast með og taka þátt í þessari skemmtilegu jólahefð.
👉 Ert þú með viðburð sem ætti að vera í aðventudagatalinu? Sendu upplýsingar á jmh@olfus.is. Við viljum að sem flestir viðburðir fái notið sín og að enginn gleymist í jólagleðinni.
✨ Við óskum öllum notalegs jólaundirbúnings og dýrmætra samverustunda með fjölskyldu og vinum. Um leið hvetjum við íbúa til að njóta jólaljósanna um sveitarfélagið, tilnefna sín uppáhalds jólahús og vera með í að skapa þá einstöku aðventustemningu sem einkennir Ölfusið. ✨
Aðventudagatalið 2026