Jómfrúarferð Mykines föstudaginn 7. apríl 2017

Vöruflutningaferjan Mykines kemur til Þorlákshafnar í fyrsta sinn föstudaginn 7. apríl næstkomandi.
Mykines er 19 þúsund tonna flutningsferja Smyril Line Cargo sem mun sigla vikulega á milli Þorlákshafnar og Rotterdam. 
Miklar framkvæmdir hafa verið í höfninni á síðustu misserum sem gera ferjunni kleift að leggjast að bryggju í Þorlákshöfn. Búið er að breikka innsiglinguna, dýpka höfnina, fjarlægja Norðurvararbryggju og með því búa til stærra snúningsrými fyrir skip.

Í tilefni þessa merka áfanga er íbúum Ölfuss sem og öðrum nærsveitungum boðið um borð í Mykines á milli kl. 16 og 18 föstudaginn 7. apríl.
Smyril Line Cargo býður upp á léttar veitingar og lifandi tónlist frá Önnu Margréti Káradóttur og Tómasi Jónssyni.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?