Kæru íbúar í Odda-, Skálholts- og Egilsbraut!
Fimmtudaginn 28. apríl nk. verður lokað fyrir neysluvatnið frá kl. 10-12:00 vegna viðgerðar.
Fimmtudaginn 28. apríl, verður lokað fyrir neysluvatnið í Oddabraut og hluta Skálholts- og Egilsbrautar frá kl. 10:00 - 12:00, vegna viðgerðar á heimæð við hús nr. 9 í Oddabraut.
Íbúar eru beðnir að gæta þess að skilja ekki eftir opna krana til að sem minnst loft komist inn á kerfið, gangi viðgerðin hraðar fyrir sig verður hleypt fyrr á aftur.
Nánari upplýsingar veitir Össur Emil Friðgeirsson, verkstjóri Þjónustumiðstöðvar í síma 862-0920