Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga í Sveitarfélaginu Ölfusi verður haldinn laugardaginn 16. maí 2026.
Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.
Kosið verður í Versölum – Ráðhúsi Ölfuss. Talning atkvæða fer fram á sama stað að loknum kjörfundi.
Athugið að kjördeildir í Ölfusi eru nú tvær og eru þær báðar í Ráðhúsi Ölfuss, Hafnarbergi 1 í Þorlákshöfn:
- Í kjördeild 1 kjósa þeir sem hafa heimilisfang (bæjarnafn eða götuheiti) sem byrja á bókstöfunum A-K
- Í kjördeild 2 kjósa þeir sem hafa heimilisfang (bæjarnafn eða götuheiti) sem byrja á bókstöfunum L-Ö og kjósendur sem eru með ótilgreint lögheimili í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Sérstök athygli er vakin á því að kjósendum er skylt að gera kjörstjórn grein fyrir sér með því að framvísa persónuskilríkjum með mynd. Þeir sem notast við rafræn ökuskírteini verða að vera með island.is appið í símanum.
Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördegi er á kjörstað.
Yfirkjörstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss