Kjörskrá fyrir Sveitarfélagið Ölfus vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí 2026 liggur frammi á bæjarskrifstofu Ölfuss, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn, frá og með 15. apríl 2026 til kjördags.
Opnunartími skrifstofu er frá kl.09:00-16:00, mánudaga til fimmtudaga og 09:00-13:00 á föstudögum.
Bent er á upplýsingavef um sveitarstjórnarkosningarnar http://www.kosningar.is en þar er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna. Þar geta kjósendur einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá á vefslóðinni https://www.skra.is/thjonusta/einstaklingar/kjorskra-og-kosningarettur/
Hver hefur kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum?
- Íslenskir ríkisborgarar sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
- Norrænir ríkisborgarar (frá Danmörku, Finnlandi, Noregi eða Svíþjóð) sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
- Erlendir ríkisborgarar sem hafa átt samfellda búsetu á Íslandi í að minnsta kosti 3 ár fyrir lok kjörfundar og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
Sveitarfélagið Ölfus