Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB í Sveitarfélaginu Ölfusi verður haldinn laugardaginn 29. ágúst 2026.
Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.
Athugið breyttan kjörstað en kosið verður í Grunnskólanum – Egilsbraut 35.
Kosið verður í tveimur kjördeildum og eru þær báðar í Grunnskóla Þorlákshafnar, Egilsbraut 35 í Þorlákshöfn:
- Í kjördeild 1 kjósa þeir sem hafa heimilisfang (bæjarnafn eða götuheiti) sem byrja á bókstöfunum A-K
- Í kjördeild 2 kjósa þeir sem hafa heimilisfang (bæjarnafn eða götuheiti) sem byrja á bókstöfunum L-Ö og kjósendur sem eru með ótilgreint lögheimili í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Sérstök athygli er vakin á því að kjósendum er skylt að gera kjörstjórn grein fyrir sér með því að framvísa persónuskilríkjum með mynd. Þeir sem notast við rafræn ökuskírteini verða að vera með island.is appið í símanum.
Sveitarfélagið Ölfus tekur þátt í prófun á rafrænni kjörskrá í samvinnu við Þjóðskrá og vegna þess verður einnig notast við tölvur við skráningu kjósenda.
Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördegi er á kjörstað.
Yfirkjörstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss