Kjörskrá fyrir Sveitarfélagið Ölfus vegna þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst 2026 liggur frammi á bæjarskrifstofu Ölfuss, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn, frá og með 6. ágúst 2026 til kjördags.
Opnunartími skrifstofu er frá kl.09:00-16:00, mánudaga til fimmtudaga og 09:00-13:00 á föstudögum.
Bent er á upplýsingavef um þjóðaratkvæðagreiðsluna Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026 | Upplýsingavefur landskjörstjórnar en þar er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna. Kjósendur geta einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá á vefslóðinni Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026 | Þjóðskrá
Hver hefur kosningarétt í þjóðaratkvæðagreiðslum:
- Íslenskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri þegar kosning fer fram og á lögheimili hér á landi
- Íslenskur ríkisborgari, sem náð hefur 18 ára aldri og hefur ÁTT lögheimili hér á landi á kosningarrétt í sextán ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu.
Eftir 16 ára búsetu erlendis skal sækja um til Þjóðskrár Íslands að vera tekinn á kjörskrá
- Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi, og hafa ekki fengið íslenskt ríkisfang, eru ekki með kosningarétt Alþingiskosningum, við forsetakjör og þjóðaratkvæðagreiðslum.