Kristín Magnúsdóttir tekur sæti í bæjarstjórn

Kristín Magnúsdóttir
Kristín Magnúsdóttir

Á fundi bæjarstjórnar Ölfuss 27. ágúst sl. var tekið fyrir bréf Rakelar Sveinsdóttur bæjarfulltrúa D-lista þar sem hún biðst lausnar frá störfum sínum sem bæjarfulltrúi vegna flutnings úr sveitarfélaginu. 

Bæjarstjórn færir Rakel þakkir fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins og óskar henni velfarnaðar á nýjun vettvangi.

Í stað Rakelar tekur sæti í bæjarstjórn fyrsti varamaður D-lista, Kristín Magnúsdóttir.  

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?