Fjöldi starfsmanna frá grunnskólunum í Þorlákshöfn og Hveragerði mættu á kynninguna
Stjórnendur og kennarar frá grunnskólunum í Þorlákshöfn og Hveragerði komu saman í Ráðhúsi Ölfuss þann 29. janúar á kynningarfund um nýtt námsmatskerfi grunnskóla, Matsferil.
Sérfræðingar frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) sáu um kynninguna en farið var yfir inntak stöðu- og framvinduprófa Matsferils, framkvæmd fyrirlagnar og hvernig nýta megi niðurstöður prófanna í kennslu og skipulag náms. Fundurinn var liður í að tryggja sem besta innleiðingu Matsferils í skólum landsins og var lögð áhersla á hagnýta nálgun, umræðu og virkt samtal við þátttakendur.
Síðastliðið sumar voru samþykktar breytingar á lögum um grunnskóla nr. 91/2008 sem fela í sér innleiðingu nýs námsmatskerfis, Matsferils, í alla grunnskóla landsins. Markmið breytinganna er að efla námsmat og styðja betur við nám, kennslu og framvindu nemenda.
Eitt stærsta verkefni yfirstandandi skólaárs er landsfyrirlögn stöðu- og framvinduprófa í lesskilningi og stærðfræði sem fram fer í mars 2026. Samræmd próf Matsferils verða lögð fyrir nemendur í 4.–10. bekk í opnum prófaglugga dagana 2.–27. mars. Skólum er skylt að leggja prófin fyrir nemendur í 4., 6. og 9. bekk en ákvörðun um fyrirlögn í öðrum árgöngum er í höndum fræðsluyfirvalda eða skólastjórnenda hvers skóla.