Landgræðslan, Vegagerðin og fleiri á fundi í Þorlákshöfn

Sandfjaran við Þorlákshöfn
Sandfjaran við Þorlákshöfn

Í gær var efnt til fundar í Þorlákshöfn um sjávarkambinn milli Óseyrarbrúar og Þorlákshafnar

Í gær var efnt til fundar í Þorlákshöfn um sjávarkambinn milli Óseyrarbrúar og Þorlákshafnar. Á vef Landgræðslunnar segir að "í hálfa öld hafa milljónir rúmmetra af sandi fokið upp úr fjörunni og bundist í melgrasinu við ströndina með þeirri afleiðingu að Kamburinn hefur hækkað um tugi metra. Þessi kambur er einstök náttúrusmíð hér á landi og þó víðar væri leitað".

Áhyggjuefni eru skörð sem í Kambinum sem sandur á greiða leið í gegnum. Vindstyrkurinn um skörðin er oft gríðarlegur og ef svo fer sem horfir munu skörðin stækka og sandfok á þjóðveginum aukast. Ljóst er að vandamál munu koma upp vegna raflínu sem er á Kambinum auk þess sem aukinn sandburður frá ströndinni mun valda vanda á golfvellinum. Melgrasið sem helst hamlar því að sandurinn berist inn á landið, á erfittt með að skjóta rótum efst í Kambinum.

Fundinn í gær sátu fulltrúar Landgræðslunnar, Vegagerðarinnar og landeigenda auk starfsmanna sveitarfélagsins Ölfuss og fulltrúa úr bæjarstjórn og bæjarráði. Rætt var um leiðir til að koma í veg fyrir að sandurinn geri þann óskunda sem að framan er lýst og var ákveðið að stofna samráðshóp hlutaðeigandi aðila til að vinna í málinu.

Í framsögu Sveins Runólfssonar, landgræðslustjóra, kom fram það mat að hagsmunaaðilar þyrftu að gera með sér formlegt samkomulag og semja áætlun um þau verk sem þarf að vinna næstu árin. Landgræðslustjóri sagði að verkaskipting þyrfti að vera skýr og forræði Kambsins í föstum skorðum svo unnt væri að friða hann fyrir umferð vélknúinna tækja og hestaumferð utan afmarkaðra slóð


Sjá má myndir teknar í skoðunarferðinni á Fésbókarsíðunni: https://www.facebook.com/media/set/?set=a.918634404865368.1073741863.152069031521913&type=3

Sjá á vef Landgræðslunnar: http://www.land.is/allar-frettir/335-fundadh-um-sjavarkamb-i-thorlakshoefn

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?