Landvörður - Reykjadalur

Landvörður - Reykjadalur

Umhverfisstofnun leitar að landverði í tímabundið sumarstarf í Reykjadal. 

Helstu verkefni og ábyrgð
Störf landvarða felast í daglegri umsjón og eftirliti á náttúruverndarsvæðunum og að gæta þess að ákvæði náttúruverndarlaga og sérlaga, friðlýsingarskilmála og stjórnunar- og verndaráætlana svæða séu virt. Landvörður kemur á framfæri upplýsingum og fræðir gesti um náttúru og sögu svæðanna, sér um viðhald innviða og heldur við merktum gönguleiðum.
Hann þarf að vera viðbúinn ef slys ber að höndum og er gerð krafa um að sá sem verður ráðinn til starfa sæki skyndihjálparnámskeið eða hafi gild skyndihjálparréttindi. Boðið verður upp á skyndihjálparnámskeið fyrir landverði í vor. 

Hæfnikröfur
- Landvarðanámskeið eða nám sem Umhverfisstofnun telur samsvarandi er krafa
- Reynsla af landvörslustörfum er kostur
- Gild ökuréttindi er krafa
- Góð færni í samskiptum er mikilvæg
- Góð kunnátta í íslensku og ensku er mikilvæg og frekari tungumálakunnátta er kostur
- Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur
- Reynsla af útivist og náttúrutúlkun, skálavörslu, björgunarsveitarstörfum og leiðsöguréttindi eru kostir

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkalýðsfélag Suðurlands hafa gert.
Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um störfin. 
Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.02.2020

Nánari upplýsingar veitir
René Biasone - rene.biasone@umhverfisstofnun.is - 591000


Umhverfisstofnun
Svið náttúru, hafs og vatns Teymi þjóðgarðs og náttúruverndar suður
Suðurlandsbraut 24

108 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?