Íbúðin er 61 m2 og er með einu svefnherbergi.
Íbúðunum að Egilsbraut 9 er ætlað að vera hentugur búsetukostur þar sem einstaklingar geta haldið eigið heimili sem lengst við sem bestar aðstæður.
Forsenda þess að geta sótt um íbúð að Egilsbraut 9 er að umsækjandi uppfylli öll eftirfarandi skilyrði:
- Umsækjandi skal hafa náð 67 ára aldri.
- Umsækjandi skal hafa átt lögheimili í sveitarfélaginu í a.m.k. 12 mánuði.
- Umsækjandi sé í þörf fyrir aðstoð og stuðning til að geta búið á eigin heimili og að slíka þjónustu sé ekki hægt að veita í núverandi húsnæði umsækjanda.
Uppfylli umsækjandi ofangreind skilyrði raðast umsóknin í forgangsröð samkvæmt matsviðmiði þar sem m.a. er haft til hliðsjónar heilsufar, félagslegar aðstæður og húsnæðisstaða. Þjónustuþörf verður þannig faglega metin af fagteymi húsnæðismála og ræður stig þjónustuþarfar mestu þegar að úthlutun kemur.
Úthlutun íbúða fer fram hjá fagteymi húsnæðismála Ölfuss og tekur mið af fyrirliggjandi gögnum.
Sótt er um rafrænt á heimasíðu Sveitarfélagsins Ölfuss.
Umsóknarfrestur er til og með. 26. maí n.k.
Athugið að allar eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Nánari upplýsingar veitir Eyrún Hafþórsdóttir deildarstjóri velferðarþjónustu eyrun@olfus.is