Íbúðin er 69,8 m² að stærð og er með tveimur herbergjum, íbúð 0107.
Íbúðirnar að Egilsbraut 9 eru ætlaðar sem hentugur búsetukostur fyrir einstaklinga
sem vilja búa sjálfstætt sem lengst við sem bestar aðstæður.
Skilyrði fyrir umsókn
Umsækjandi þarf að uppfylla öll eftirfarandi skilyrði:
1. Hafa náð 67 ára aldri.
2. Hafa haft lögheimili í sveitarfélaginu í minnst 12 mánuði.
3. Vera í þörf fyrir aðstoð og stuðning til að geta búið á eigin heimili og að slíka
þjónustu sé ekki hægt að veita í núverandi húsnæði.
Forgangsröðun umsókna
Ef umsækjandi uppfyllir skilyrðin fer umsókn í forgangsröð samkvæmt matsviðmiðum
þar sem litið er m.a. til:
* heilsufars
* félagslegra aðstæðna
* húsnæðisstöðu
Þjónustuþörf er metin faglega af fagteymi húsnæðismála, og hefur stig
þjónustuþarfar mest áhrif við úthlutun.
Úthlutun er í höndum fagteymis húsnæðismála Ölfuss og byggir á fyrirliggjandi
gögnum.
Umsókn og frestur
Umsækjendur sækja um rafrænt á heimasíðu Sveitarfélagsins Ölfuss.
Umsóknarfrestur er til og með 23. febrúar nk.
Athugið að allar eldri umsóknir þurfa að vera endurnýjaðar.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna M. Hjartardóttir sviðsstjóri fjölskyldu og fræðslusviðs, jmh@olfus.is