Laus íbúð fyrir eldri borgara við Egilsbraut 9 í Þorlákshöfn

 Laus er til úthlutunar tveggja herbergja íbúð, 65 m² að stærð (íbúð 0105).
Íbúðirnar við Egilsbraut 9 bjóða upp á öruggan, aðgengilegan og þægilegan búsetukost fyrir fólk sem vill búa sjálfstætt sem lengst og njóta góðra lífsgæða á eigin heimili.

Skilyrði fyrir umsókn

Til að eiga rétt á úthlutun þarf umsækjandi að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Hafa náð 67 ára aldri
  • Hafa haft lögheimili í Sveitarfélaginu Ölfusi í að minnsta kosti 12 mánuði
  • Vera í þörf fyrir aðstoð eða stuðning til að geta búið áfram á eigin heimili og að
    ekki sé unnt að veita þá þjónustu í núverandi húsnæði.

Mat og forgangsröðun umsókna

Umsóknir sem uppfylla framangreind skilyrði eru metnar samkvæmt gildandi
matsviðmiðum. Við matið er meðal annars horft til:

  • heilsufars
  • félagslegra aðstæðna
  • húsnæðisstöðu


Þjónustuþörf er metin af fagteymi húsnæðismála og hefur umfang hennar mest vægi
við forgangsröðun umsókna. Úthlutun íbúðar byggir á niðurstöðum matsins og
fyrirliggjandi gögnum.

Umsóknir:
Sótt er um rafrænt á heimasíðu Sveitarfélagsins Ölfuss.
Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2026.

Athugið: Endurnýja þarf allar eldri umsóknir til að þær komi til skoðunar við úthlutun.

Nánari upplýsingar
Jóhanna M. Hjartardóttir
sviðsstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs
jmh@olfus.is 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?