Listaverðlaun Ölfuss voru veitt 11. ágúst síðastliðinn á bæjar- og fjölskylduhátíðinni Hafnardögum og var það Leikfélag Ölfuss sem hlaut verðlaunin.
Leikfélag Ölfuss hefur auðgað listmenningu Ölfuss með skapandi og metnaðarfullu starfi síðastliðin 12 ár og eiga verðlaunin vel skilið.
Upphaf leikfélagsins var árið 2005 þegar nokkrir kraftmiklir einstaklingar tóku sig saman og stofnuðu leikfélag eftir að leiklistarstarf hafði legið í dvala síðan um 1980 þegar Leikfélag Þorlákshafnar hætti störfum. Síðan þá hefur leikfélagið tekið virkan þátt í menningarlífi Ölfuss, sett upp leiksýningu árlega ásamt mörgum stuttverkum, haldið námskeið og tekið þátt í ýmsum viðburðum innan sveitarfélagsins.
Glerlistakonan Dagný Magnúsdóttir hjá Hendur í Höfn hannaði verðlaunagripinn.