Lið Ölfuss mætir í Útsvar í kvöld

Lið Ölfuss í Útsvari
Lið Ölfuss í Útsvari

Þá er komið að næstu viðureign í Útsvari, en í kvöld mætir lið Ölfuss Seltirningum í átta liða úrslitum.

Síðastliðinn föstudag kepptu lið Ölfuss og Stykkishólms í 16 liða úrslitum í Útsvari. Lið Ölfuss var skipað þeim Ingibjörgu Hjörleifsdóttur, Hannesi Stefánssyni og Stefáni Hannessyni. Þau stóðu sig mjög vel og sigruðu með 79 stigum á móti 53.

Átta liða úrslitin hefjast í kvöld og keppir lið Ölfuss í fyrstu viðureigninni á móti liði Seltjarnarness. Það lið sem sigrar þá viðureign er síðan komið í undanúrslit.

Við óskum Ingibjörgu, Hannesi og Stefáni góðs gengis í keppni kvöldisins og eru allir sem hafa áhuga velkomnir í sjónvarpssal í Efstaleiti, mæting þangað er klukkan hálf átta.


Myndin sem birtist með fréttinni er tekin af vef Hafnarfrétta: http://hafnarfrettir.is/2015/03/06/olfus-i-8-lida-urslit-i-utsvari/

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?