Lokun Suðurlandsvegar milli Selfoss og Hveragerðis 15.október

Vegagerðin hefur gefið heimild fyrir eftirfarandi framkvæmdum, ef veður leyfir.

Fimmtudaginn 15.október er stefnt að malbiksviðgerðum á Suðurlandsvegi milli Selfoss og Hveragerðis. Suðurlandsvegur verður lokaður frá Selfossi í átt að Hveragerði á meðan á framkvæmdum stendur. Hjáleið verður um Ölfusveg, sjá meðfylgjandi lokunarplan.

Áætlað er að framkvæmdir standi yfir frá kl. 09:00 til 20:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?