Makalaus sambúð á sviði í Þolákshöfn

Makalaus sambúð_Leikfélag Ölfuss
Makalaus sambúð_Leikfélag Ölfuss
Þann 18. október n.k. frumsýnir Leikfélag Ölfuss leikritið Makalaus sambúð eftir Neil Simon
Þann 18. október n.k. frumsýnir Leikfélag Ölfuss leikritið Makalaus sambúð eftir Neil Simon. Leikritið verður sýnt í Versölum í Ráðhúsi Ölfuss og leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson.

Leikritið fjallar á kómískan hátt um vinkonur í spilaklúbbi, gleði þeirra og raunir. Það gengur á ýmsu, ekki hvað síst þegar ofurhúsmóðirin Elísabet flytur inn til Margrétar sem er ekki alveg jafn skipulögð. Þá eru spænsku bræðurnir Manolo og Jesus ekki til að bæta samskipti milli vinkvennanna. Drepfyndið verk sem þú ættir ekki að láta framhjá þér fara.

Leikarar eru Ásta Margrét Grétarsdóttir, Magnþóra Kristjánsdóttir, Aðalsteinn Jóhannsson, Árný Leifsdóttir, Ingólfur Arnarson, Oddfreyja H. Oddfreysdóttir, Þuríður Sigurrós Sigurðardóttir og Þrúður Sigurðar.

Sýningar

Föstudagur 18. okt. kl. 20.00 – frumsýning
Föstudagur 25. okt. kl. 20.00
Þriðjudagur 29. okt. kl. 20.00
Fimmtudagur 31. okt. kl. 20.00
Þriðjudagur 5. nóv. kl. 20.00
Fimmtudagur 7. nóv. kl. 20.00

Miðasala hefst klukkustund fyrir hverja sýningu en einnig er hægt er að panta miða í síma 664-6454 (Þrúður).
Miðaverð 2.000 kr. Athugið, engir posar tiltækir!

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?