Markaðsátak MSS - Suðræn upplifun

Vantar þig góða hugmynd að jólagjöf til fjölskyldu, vina eða starfsmanna? Markaðsstofa Suðurlands mælir með Suðrænni upplifun í jólapakkann í ár. 

Á Suðurlandi má finna mjög fjölbreytta þjónustu og afþreyingu þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hvort sem þig langar í sæluferð með maka, ævintýraferð með vinahópnum eða skemmtilega fjölskylduferð. 

Á síðunni www.sudurland.is/gjafabref má finna úrval af gjafabréfum sem hægt er að kaupa hjá ferðaþjónustufyrirtækjum á Suðurlandi.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?