Matsjáin - smáframleiðendur matvæla. Umsóknarfrestur er til 20.nóvember nk.

Smáframleiðendur matvæla sameinast í Matsjánni


Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Matsjána, verkefni sem er ætlað smáframleiðendum matvæla semvilja efla leiðtogafærni sína, öðlast aukna getu til að þróa vörur og þjónustu og efla tengslanetið sitt í greininni. Matsjáin fer fram á 14 vikna tímabili frá 6. janúar til 7. apríl og samanstendur af sjö lotum með heimafundum/jafningjaráðgjöf, fræðslu og erindum, verkefnavinnu og ráðgjöf. Verkefnið fer fram á netinu þvert á landið og lýkur með veglegri uppskeruhátíð þar sem þátttakendur hittast í raunheimi.

Verkefnið hlaut styrk úr Matvælasjóði og er byggt upp að fyrirmynd Ratsjárinnar sem er verkefni fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu þróað af Íslenska ferðaklasanum. Samtök smáframleiðanda matvæla og landshlutasamtök sveitarfélaga um land allt standa að Matsjánni en verkefnisstjórn er í höndum RATA.


,,Eitt af megin markmiðum Samtaka smáframleiðenda matvæla er að hámarka ávinning félagsmanna af
aðild og lykil áhersluverkefni að auka þekkingu og þróa verkfæri sem geta nýst þeim í þeirra rekstri. Við
sóttum því um styrk í Matvælasjóð til að bjóða upp á metnaðarfullt fræðsluverkefni í samstarfi við
landshlutasamtökin - sem myndi einnig stuðla að auknu samstarfi og samtakamætti smáframleiðenda
matvæla um land allt sem er einmitt megintilgangur samtakanna. Við erum stolt af því að geta stutt við
bakið á okkar félagsmönnum og bjóðum alla aðra smáframleiðendur sem vilja slást í hópinn velkomna.”
(Oddný Anna Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda matvæla)


Matsjáin mun snerta á helstu áskorunum sem smáframleiðendur matvæla standa frammi fyrir í dag en endanleg dagskrá mun vera unnin í samstarfi við  þátttakendur sem geta með kosningu haft áhrif á þá fræðslu sem boðið verður upp á. Listi yfir möguleg umfjöllunarefni er að finna inn í umsóknarforminu
hér. Meðal ávinninga af þátttöku má nefna að efla fókus í starfsemi og framleiðsluferli, öðlast ný verkfæri og þekkingu, aukin leiðtogafærni, koma auga á ný viðskiptatækifæri og aukið tengslanet og mögulegt samstarf meðal þátttakenda.


“Landshlutasamtökin tóku þátt í Ratsjánni fyrr á árinu og var mikil ánægja meðal þátttakenda og
samtakanna með fyrirkomulagið og fræðsluna. Eftir samtal við SSFM sáum við að það var tækifæri á að
nýta hugmyndafræðina í fleiri greinum og þróa verkefni fyrir smáframleiðendur matvæla. Við teljum
verkefnið vel til þess fallið að efla stjórnendur í matvælaframleiðslu, ýta undir nýsköpun og vöruþróun í
greininni og ekki síst stórefla tengslanetið á milli aðila sem getur ýtt undir samstarf og ný
viðskiptatækifæri - allt þetta þvert á landið.” (Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV)

 

Umsóknarfrestur er til 20. nóvember og verkefnið hefst með kynningarfundi 2. desember kl. 15:00. Matsjáin hefst svo formlega 6. janúar og lýkur 7. apríl. Þátttökugjald í Matsjána er kr. 30.000, innifalið er gjaldfrjáls aðild að SSFM fyrir árið 2022. Þátttökugjald í Matsjána fyrir núverandi félagsmenn SSFM er
15.000 kr. Umsóknina má nálgast hér: Umsókn í Matsjána 2022


Frekari upplýsingar:
Verkefnastjóri Matsjárinnar: Svava Björk Ólafsdóttir / svava@rata.is / 695-3918
Ráðgjafar á Suðurlandi:Þuríður Helga Benediktsdóttir / framtid@klaustur.is  / 893-2115
Guðný Gígja Benediktsdóttir / gudny@nyheimar.is / 470-8086

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?