Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir styrkumsóknum

Styrkveiting Menningarráðs
Styrkveiting Menningarráðs

Auglýst hefur verið eftir styrkumsóknum og eru félög, einstaklingar og stofnanir hvött til að sækja um. Menningarfulltrúi Suðurlands verður í Þorlákshöfn til að leiðbeina og aðstoða umsækjendur 11. mars frá kl. 11-13

Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Heimilt er að sækja um styrk til verkefna sem umsækjandi er þegar byrjaður að vinna í.

Menningarráð Suðurlands hefur ákveðið að árið 2011 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

1.      Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.

2.      Verkefni sem efla nýsköpun tengd menningu.

3.      Verkefni sem stuðla beint að fjölgun atvinnutækifæra.

4.      Verkefni sem styðja við menningartengda ferðaþjónustu.

5.      Verkefni sem draga fram staðbundin eða svæðisbundin menningareinkenni eða menningararf.

Menningarráðið mun hvorki veita rekstrar-, stofnkostnaðar- né endurbótastyrki. Ekki verður heldur styrkt skráning á menningarminjum, starfsemi íþróttafélaga, bæjarhátíðir, almennar samkomur, safnaðarstarf og hefðbundið menningarstarf innan skóla.

Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2011.

Ætlunin er að tilkynna um úthlutun í apríl 2011. Fyrirvari er gerður um undirritun nýs menningarsamnings við ríkið fyrir þann tíma.

 Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Suðurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðu Menningarráðs http://www.sunnanmenning.is/. Allar nánari upplýsingar veitir Dorothee Lubecki, menningarfulltrúi Suðurlands, í síma 480-8207, 896-7511 eða með tölvupósti menning@sudurland.is.

Menningarfulltrúi verður til viðtals í öllum sveitarfélögum.

Umsóknir skal senda, í tölvupósti á menning@sudurland.is eða í ábyrgðarpósti, til Menningarráðs Suðurlands, Austurvegi 56, 800 Selfoss

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?