Molta fyrir íbúa

Það hefur verið ákveðið að bjóða íbúum sveitarfélagsins aftur upp á Moltu.

Molta er tilvalin til þess að setja td. ofan á trjábeð.

Þegar moltan er búin til hitnar hún mjög mikið og má því segja að hún sé gerilsneydd og án allra illgresisfræja. Moltan samanstendur af lífrænum úrgangi s.s. eldaðum matarleifum, ávöxtum, grænmeti og kurluðum trjágreinum.  Ferlið tekur um 4 mánuði og nær hitin á ferlinu upp í 70°C.

Með bestu kveðju og von um að fólk nýti sér þetta.

Þjónustumiðstöð Sveitarfélagsins Ölfus.

Ps. Fólk er beðið um að ganga vel um þegar það sækir sér moltu og hreinsa upp eftir sig ef það sullast eitthvað niður.

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?