Sveitarfélagið Ölfus býður íbúum upp á Moltu. Moltan er staðsett á gámasvæðinu og hægt er að nálgast hana á opnunartíma gámasvæðisins.
Athugið: Ekki er gert ráð fyrir að íbúar taki of mikið. Hámark er ein meðalstór kerra á hvert heimili.
Molta hentar vel til að setja ofan á trjábeð og önnur beð í görðum.
Við moltugerð hitnar efnið mjög mikið og má því segja að moltan sé gerilsneydd og laus við illgresisfræ. Moltan samanstendur af lífrænum úrgangi, svo sem elduðum matarleifum, ávöxtum, grænmeti og kurluðum trjágreinum. Ferlið tekur um fjóra mánuði og getur hitinn náð allt að 70°C.
Með bestu kveðju
Þjónustumiðstöð Sveitarfélagsins Ölfuss