Móttaka framboða hjá Sveitarfélaginu Ölfusi

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026 rennur út föstudaginn 10. apríl nk. klukkan 12:00. Kosið verður til bæjarstjórnar í Sveitarfélaginu Ölfusi. Framboðslistar skulu hafa borist yfirkjörstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss áður en framboðsfrestur rennur út sbr. ofangreindan tíma.

Yfirkjörstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss mun taka á móti framboðum í fundarsal á bæjarskrifstofu Ölfuss (2.hæð), Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn föstudaginn 10.apríl 2026 frá kl.11:00-12:00.

Á framboðslista skulu vera að lágmarki 7 nöfn frambjóðenda og eigi fleiri en 14. Framboðslista skal fylgja yfirlýsing þeirra, sem á listanum eru, um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift. Gæta skal þess að tilgreina með skýrum hætti fullt nafn frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu eða starfsheiti og lögheimili, til þess að enginn vafi leiki á því hver er í kjöri. Eyðublað fyrir framboðslista er að finna á vef landskjörstjórnar

Í tilkynningu um framboð þurfa að koma fram upplýsingar um heiti stjórnmálasamtaka og listabókstaf þeirra. Hyggist stjórnmálasamtök, sem ekki hafa skráðan listabókstaf samkvæmt auglýsingu um listabókstafi stjórnmálasamtaka nr. 54/2025 í B-deild Stjórnartíðinda, bjóða fram lista skulu þau um leið og framboðslista er skilað til yfirkjörstjórnar leggja þar fram beiðni um úthlutun listabókstafs og staðfestingu á heiti framboðs. Sjá skrá dómsmálaráðuneytisins um heiti stjórnmálasamtaka og listabókstaf þeirra

Með hverjum framboðslista skal fylgja skrifleg tilkynning frá frambjóðendum listans um það hverjir eru umboðsmenn listans. Upplýsingar um nafn, fæðingardag, netfang og símanúmer umboðsmanns skulu fylgja tilkynningunni ásamt skriflegu samþykki hans. Samþykkið getur verið undirritað eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift. Sýnishorn af tilkynningu um framboð og umboðsmenn er að finna á vef landskjörstjórnar.

Framboðslistum skal og fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann frá kjósendum í sveitarfélaginu, 40 meðmælenda hið fæsta og eigi fleiri en 80. Rafræn söfnun meðmæla fer fram á www.island.is Hver kjósandi má einvörðungu mæla með einum lista við hverjar kosningar. Greina skal nafn, kennitölu og lögheimili meðmælenda. Heimilt er að safna meðmælum á pappír en þá er mælst til þess að framboð slái meðmælin inn í rafræna meðmælakerfið. Skila þarf inn frumriti til yfirkjörstjórnar sveitarfélagsins.

Frambjóðendur geta ekki verið meðmælendur eigin framboðs. Kjörstjórnarmenn í landskjörstjórn, yfirkjörstjórnum og umdæmiskjörstjórnum geta ekki vera meðmælendur framboðs. Nánari upplýsingar um meðmælasöfnun.

 

Nánari upplýsingar og eyðublöð vegna skila á framboðum er að finna á vef landskjörstjórnar á island.is 

https://island.is/v/sveitarstjornarkosningar-2026/skil-a-frambodum

 

Þorlákshöfn 31.mars 2026

Yfirkjörstjórnin í Sveitarfélaginu Ölfusi

Sigurður Ósmann Jónsson

Katrín Ósk Hannesdóttir

Ásta Margrét Grétars Bjarnadóttir

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?