Barnasvæðið er skemmtilegt fyrir unga bókaorma
Bókasafnið í Ölfusi hefur opnað nýja heimasíðu sem ætlað er að bæta aðgengi að þjónustu safnsins og gera notendum auðveldara að nálgast upplýsingar og efni.
Á nýju heimasíðunni má meðal annars finna upplýsingar um viðburði, opnunartíma og fjölbreytta þjónustu sem bókasafnið býður upp á. Þá hefur sérstök áhersla verið lögð á einfalt og notendavænt viðmót, sem hentar bæði börnum og fullorðnum.
Með þessari uppfærslu tekur bókasafnið mikilvægt skref í átt að aukinni stafrænnri þjónustu og betri tengingu við samfélagið í Ölfusi.
Íbúar eru hvattir til að heimsækja nýju síðuna og kynna sér það sem í boði er.

Árný Leifsdóttir forstöðumaður bókasafnsins tekur vel á móti gestum