Nýr bæklingur um þjónustu fyrir eldra fólk í Ölfusi kominn út

Mynd frá íbúafundi eldra fólks á Níunni
Mynd frá íbúafundi eldra fólks á Níunni

Nýr og glæsilegur bæklingur um þjónustu fyrir eldra fólk í Ölfusi er kominn út. Útgáfan er samstarfsverkefni fjölskyldu- og fræðslusviðs Ölfuss, velferðarþjónustu sveitarfélagsins og öldungaráðs Ölfuss, og er hluti af markvissri stefnu um að bæta upplýsingaflæði og þjónustu við eldra fólk.

Bæklingurinn hefur að geyma yfirgripsmiklar og hagnýtar upplýsingar um fjölbreytta þjónustu sem stendur eldra fólki til boða, allt frá félagsstarfi og heimaþjónustu til húsnæðisúrræða og heilbrigðisþjónustu. Sérstök áhersla er lögð á að kynna þjónustu sem eflir lífsgæði og dregur úr félagslegri einangrun. Sjá bæklinginn hér

Markmið bæklingsins er að auðvelda eldra fólki og aðstandendum þeirra að nálgast upplýsingar á einum stað og styðja þannig við aukið sjálfstæði, virkni og vellíðan. Þar er meðal annars fjallað um öflugt félagsstarf á Níunni í Þorlákshöfn, þar sem boðið er upp á fjölbreytta dagskrá eins og leikfimi, leshópa, spilaklúbba og menningarviðburði. 

Fyrirhugað er að gefa út prentaðan bækling í lok sumars. 

Útgáfuhópurinn þakkar öllum þeim sem komu að textagerð og eru á myndunum í bæklingnum kærlega fyrir en myndirnar eru m.a. teknar af starfsmönnum á Níunni.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?