Nýr skólastjóri Grunnskólans í Þorlákshöfn

nyr skolastjori
nyr skolastjori

Guðrún Jóhannsdóttir nýr  skólastjóri  Grunnskólans í Þorlákshöfn tók við lyklavöldum að skólanum í dag úr hendi Guðna Péturssonar bæjarritara sveitarfélagsins  en hún hefur verið  ráðin frá 1. ágúst sl.

Guðrún Jóhannsdóttir nýr  skólastjóri  Grunnskólans í Þorlákshöfn tók við lyklavöldum að skólanum úr hendi Guðna Péturssonar bæjarrritara sveitarfélagsins  í dag en hún hefur verið  ráðin frá  og með 1. ágúst sl.

Guðrún er ættuð frá  Eyrarbakka og hefur starfað sem deildarstjóri yngri deildar og forstöðumaður skólavistunar í Vallaskóla á Selfossi siðustu ár.  

Bæjarstjórn Ölfuss starfsmenn  sveitarfélagsins svo og íbúar Þorlákshafnar bjóða hana hjartanlega velkomna til starfa og hlakka til samstarfs við hana við frekari uppbyggingu og þróun skólastarfs við Grunnskólann í Þorlákshöfn.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?