Ölfus mætir Grindavík í Útsvari næstkomandi föstudag

Ölfus mætir Grindavík í Útsvari næstkomandi föstudag, 28. september.

Eins og allir vita unnu Árný, Hannes og Magnþóra Útsvarið í vor og þau munu halda áfram núna og reyna að landa sigrinum aftur.
Við hvetjum alla að koma í sjónvarpssal og hvetja þau áfram á föstudaginn. Útsending hefst kl 19:40 og mæting í Efstaleiti kl. 19:10.

Útsvarið er með aðeins breyttu sniði í ár og þáttaröðin verður snarpari, sveitarfélög verða færri og þáttaröðin stytt. Það verður boðið þeim liðum til keppni sem hafa unnið Útsvarið síðastliðin 11 ár, komist í úrslit eða farið mjög nærri því. Það er því búist við afar harðri og skemmtilegri keppni. Stefnt var að því að öll lið væru skipuð fyrri þátttakendum, þ.e. þeim þáttakendum sem voru í sigurliði sveitarfélagsins, lentu í öðru sæti o.s.frv. Einnig verða fjögur óhefðbundnari lið með í keppni, sem verður betur kynnt síðar. 
Þátturinn sjálfur verður með hefðbundnu sniði og minniháttar breytingar eiga sér stað líkt og fyrri ár. Nýr aðaldómari og spurningahöfundur, Jón Svanur Jóhannsson er tekinn við, en hann var annar aðalspurningahöfunda í fyrra. Sem fyrr eru það Sóli Hólm og Gunna Dís sem eru spyrlar.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?