Opið er fyrir umsóknir í lista- og menningarsjóð Ölfuss

Styrkumsóknir í lista- og menningarsjóð Ölfuss

Markaðs- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði Ölfuss.

Markmið sjóðsins er:

-          Að efla hverskonar menningarstarfsemi og list í sveitarfélaginu.

-          Að veita styrki til sérstakra verkefna á sviði lista- og menningarmála er tengjast sveitarfélaginu á einn eða annan hátt.

Upplýsingar um reglur sjóðsins er að finna á vef sveitarfélagsins

Hægt er að nálgast umsóknarblöð á vef sveitarfélagsins.

Umsóknarfrestur er til 15. október 2018 og skulu umsóknir berast til markaðs- og menningarfulltrúa í gegnum umsóknareyðublaðið á vef sveitarfélagsins eða í tölvupósti katrin@olfus.is

Nánari upplýsingar veitir Katrín Ósk Sigurgeirsdóttir, markaðs- og menningarfulltrúi í síma 480 3808 eða tölvupósti katrin@olfus.is.

 

Markaðs- og menningarnefnd Ölfuss

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?