Óskað eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2011

Á Bergheimum 20044
Á Bergheimum 20044
Fréttatilkynning Heimilis og skóla

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra verða afhent í 16. sinn við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 24. maí nk.

 

Fréttatilkynning  

 

Óskað eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2011

 

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, verða afhent í 16. sinn við athöfn í  Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 24. maí næstkomandi. 

 

Heimili og skóli – landssamtök foreldra óska eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2011 frá einstaklingum, félögum eða hópum sem vilja vekja athygli á vel unnum verkefnum, sem stuðla að eflingu skólastarfs og jákvæðu samstarfi heimila, skóla og samfélagsins.

 

Með afhendingu verðlaunanna vilja samtökin vekja athygli á því gróskumikla starfi sem fer fram innan leik- grunn- og framhaldsskóla og þeim fjölmörgu verkefnum sem stuðla jákvæðu og öflugu samstarfi heimila, skóla og samfélagsins.  

 

Fólk er hvatt til að líta eftir og tilnefna verðug verkefni í sínu nærumhverfi.

 

Sérstakt tilnefningarblað er á heimasíðu samtakanna www.heimiliogskoli.is. Þar er jafnframt að finna leiðbeiningar og nánari upplýsingar um Foreldraverðlaunin. Einnig eru veittar upplýsingar á skrifstofu samtakanna í síma 516 0100.

 

Síðasti skiladagur tilnefninga er fimmtudagur 28. apríl 2011.

 

 

           

 

 

                                  

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?