Pendúllinn hjálpar við verðlagningu

Sigurbjörg Eyjólfsdóttir verðleggur handverk með pendúl
Sigurbjörg Eyjólfsdóttir verðleggur handverk með pendúl

Í Gallerí Undir stiganum, sýningarrými bókasafnsins hefur Sigurbjörg Eyjólfsdóttir, handverkskona úr Selvoginum sett upp sérlega skemmtilega sýningu sem ber yfirskriftina „það er hægt að mála á allt“.

Í litlu sýningarrými á bókasafninu í Þorlákshöfn hafa fjölmargir fengið að sýna það sem þeir eru að fást við eða að safna. Núna hefur Sigurbjörg Eyjólfsdóttir, handverkskona úr Selvoginum sett upp sérlega skemmtilega sýningu sem ber yfirskriftina „það er hægt að mála á allt“. Orðum sínum til staðfestingar, sýnir hún myndir sem hún hefur málað á rekavið, ryðgaðar skóflur, ónýta fötu og ýmislegt annað.  Myndefnið er sveitalífið á Íslandi áður fyrr, bátar, konur og karlar. Gjarnan eru þarna andlitsmyndir og eru fyrirmyndirnar margar hverjar þekkt andlit úr Ölfusinu en einnig andlit sem Sigurbjörg hefur séð í blöðum og tímaritum og hafa ekki horfið henni úr minni. 

Sigurbjörg býr í Þorkelsgerði í Selvogi. Hún á þar nokkrar hænur og ræktar jurtir sem hún notar til að búa til krem og krydd. Selvogurinn hefur löngum verið mjög afskekktur, þangað var ekki lagt rafmagn fyrr en árið 1970 og í dag er einungis föst búseta á þremur bæjum. Strandarkirkja og hið sérstaka andrúmsloft við kirkjuna dregur marga ferðamenn á svæðið og í mörg ár tók Sigurbjörg á móti gestum og sýndi þeim handverk. Í dag er Sigurbjörg mikið á faraldsfæti. Eftir að Suðurstrandarvegur opnaði fór hún að sækja félagsstarf í auknum mæli til Þorlákshafnar og er m.a. í tónlistarhópnum Tónar og Trix sem er þessa dagana að leggja lokahönd á útgáfu á sumarlegum tónlistardiski.

Sýning Sigurbjargar er skemmtilega uppsett, þar sem hún notar gamlar spítur til að búa til hillur og innan um ryðgaða gamla dótið standa nokkur kerti með teiknuðum blómum og gyllingu, en Sigurbjörg hefur lengi séð um að skreyta kerti sem notuð eru í Strandarkirkju.  Þegar sýningin var komin upp, dróg Sigurbjörg fram pendúl sem hjálpar henni að verðleggja handverkið.  Hún spyr pendúlinn hvað viðkomandi handverk eigi að kosta og hann gefur yfirleitt skýr svör. Reyndar kom upp smá vandamál varðandi tvö verk, en pendúllinn vildi ekki samþykkja neitt verð á þau og túlkar Sigurbjörg það þannig að hún eigi ekki að selja þau verk.

Sýningin mun standa yfir til maíloka og er hægt að skoða hana á opnunartíma bókasafnsins.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?