Perlað af krafti

Miðvikudaginn 20. júní ætla Sunnlendingar, HSK og aðildarfélög þess að taka höndum saman og perla af krafti fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Viðburðurinn verður haldinn í Fjallasal Sunnulækjarskóla á Selfossi miðvikudaginn 20. júní nk. frá klukkan 16:00 til 20:00.

 

Núna skiptir máli að sem flestir mæti á svæðið og leggi hönd á plóg við að ná Perlubikarnum til Sunnlendinga. Perlubikarinn er keppni milli sveitafélaga/íþróttafélaga þar sem keppst er við að perla sem flest armbönd á fjórum tímum. Vestmannaeyingar hófu keppnina en Akureyringar náðu bikarnum af þeim með því að perla 2302 armbönd. Austfirðingar reyndu við metið en náðu því ekki en eru þó í öðru sæti með 1673 armbönd. Austfirðingar skoruðu því á Sunnlendinga, HSK og aðildarfélög að gera betur og ná bikarnum af Akureyringum.

 

Armböndin sem um ræðir eru í fánalitunum og eru þau seld til stuðnings Krafti, stuðningsfélagi ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum og sýna þau einnig samstöðu með íslenska fótboltaliðinu á HM. Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og skapa enn meiri stemningu og eftirvæntingu fyrir leik Íslendinga á móti Nígeríu á föstudaginn.

 

Armböndin eru til sölu á viðburðinum og á vefsíðu Krafts www.kraftur.org en allur ágóði af armböndunum rennur til Krafts.

 

Facebook síða viðburðarins er https://www.facebook.com/events/539498143111078/

 

Hjálpið okkur að hjálpa öðrum!

 

 

Allar nánari upplýsingar veitir Hulda Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri Krafts í síma 866-9600 eða í tölvupósti hulda@kraftur.org

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?