Píeta samtökin í Ölfusi - þjónustusamningur undirritaður

Þjónustusamningur milli sveitarfélagsins Ölfus og Píeta samtakanna undirritaður.

Miðvikudaginn 23. september 2026 var undirritaður þjónustusamningur milli Sveitarfélagsins Ölfuss og Píeta samtakanna. Píeta samtökin bjóða upp á gagnreynda meðferð fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri, sem glíma við sjálfsvígshugsanir og sjálfsskaða. Píeta samtökin bjóða einnig upp á viðtöl og opna stuðningshópa fyrir aðstandendur þeirra sem glíma við sjálfsvígshugsanir og þeirra sem hafa misst ástvin í sjálfsvígi.

Píeta samtökin eru 10 ára í ár og bjóða þau upp á faglega og góða þjónustu sem er öllum að kostnaðarlausu sem þangað sækja. Hjálparsími Píeta 1799 er opinn allan sólarhringinn.

Markmið samningsins er að efla aðgengi íbúa að þjónustu Píeta samtakanna með því að tryggja hentuga aðstöðu í samræmi við þarfir starfseminnar.

Ragnhildur Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri Píeta samtakanna og Eyrún Hafþórsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs undirrituðu samninginn í ráðhúsi Ölfuss í Þorlákshöfn.

Ölfus er enn eitt sveitarfélagið sem gerir þjónustusamning við Píeta samtökin, en fyrir eru Píeta skjól á Ísafirði, Akureyri og Reyðafirði.

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?