Ragnheiður Hergeirsdóttir ráðin forstöðumaður

Ákveðið hefur verið að ráða Ragnheiði Hergeirsdóttur í starf forstöðumanns Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings.  Ragnheiður hefur lokið BA prófi í uppeldisfræði með félagsfræði sem aukagrein. Hún hefur jafnframt lokið starfsréttindanámi í félagsráðgjöf, diplómanámi í opinberri stjórnsýslu og er að ljúka  lokaverkefni í rannsóknartengdu meistaranámi í félagsráðgjöf þar sem hún skoðar félagsþjónustu sveitarfélaga og samfélagsleg áföll.

Ragnheiður starfar sem félagsráðgjafi á geðsviði Landspítala háskólasjúkrahúss auk þess sem hún hefur verið aðstoðarmaður prófessors í félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands og hefur jafnframt sinnt stundakennslu. Ragnheiður hefur víðtæka stjórnunarreynslu. Hún hefur starfað sem forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Suðurlandi og sem verkefnastjóri hjá Vinnumálastofnun m.a. vegna innleiðingar atvinnumála fatlaðs fólks á landsvísu. Ragnheiður var um tíma félagsmálastjóri í félagsþjónustu Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu. Hún gengdi stöðu bæjarstjóra Árborgar í eitt kjörtímabil og hefur setið í bæjarstjórn Árborgar og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélagið, sveitarfélög á Suðurlandi, Samband íslenskra sveitarfélaga og ráðuneyti. Hún starfaði áður sem yfirfélagsráðgjafi á Sogni og sem framkvæmdastjóri á svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Suðurlandi.

Ragnheiður mun taka við starfinu af Maríu Kristjánsdóttur sem sinnt hefur forstöðumannsstarfinu frá upphafi starfseminnar.  Hún mun nú hverfa til starfa hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga en henni eru þökkuð góð störf og skemmtileg samvinna á undanförnum árum um leið og henni er óskað velfarnaðar á nýjum slóðum.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?