Ratleikur og fleira af tilefni bókasafnsdagsins

mynd vegna bókasafnsdags 2013
mynd vegna bókasafnsdags 2013
Bókasafnsdagurinn verður haldinn hátíðlegur mánudaginn 9.september á bókasöfnum um allt land
Bókasafnsdagurinn verður haldinn hátíðlegur mánudaginn 9.september á bókasöfnum um allt land. Markmið bókasafnsdagsins er að vekja athygli á öllu því góða starfi sem unnið er á bókasöfnunum og mikilvægi bókasafna fyrir samfélagið.

Í tilefni Bókasafnsdagsins, sem haldinn er nú í þriðja skipti, verður boðið upp á margvíslega dagskrá á bókasöfnunum. Á Bæjarbókasafni Ölfuss í Þorlákshöfn gefst gestum kostur á að fara í ratleik, og geta úr hvaða bókmenntaverki valdir textar eru. Þeir sem ná að leysa þessi verkefni vel af hendi, eiga átt von á glaðningi. Útbúin hafa verið sérstök bókamerki af tilefni dagsins og eru þau sérlega falleg þar sem yfirskrift bókasafnsdagsins er greinileg, en hún er „lestur er bestur – spjaldanna á milli“.  Gestir fá með sér bókamerki og auk alls þessa verður boðið upp á kaffi og kleinur af tilefni dagsins.

Allir eru hvattir til að kíkja á bókasafnið á bókasafnsdeginum og halda upp á hann með starfsfólki.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?