Rauði krossinn sér um sóttvarnarhús og sinnir símtölum 1717

Nú þegar faraldur COVID-19 af völdum kórónaveirunnar breiðist hratt út gegnir Rauði krossinn á Íslandi ákveðum skyldum og tekur þátt í viðbragðsáætlun almannavarna vegna heimsfaraldsins. Rauði krossinn hefur umsjá með sóttvarnarhúsi og gegnir Hjálparsíminn 1717 mikilvægu hlutverki. Upplýsingafulltrúi Rauða krossins er hluti af upplýsingateymi almannavarna sem starfar í samhæfingarstöð almannavarna (SST). Almannavarnir hafa lýst yfir neyðarstigi vegna faraldsins.

Sóttvarnarhús

Eitt stærsta verkefni Rauða krossins vegna COVID-19 er umsjá sóttvarnarhúsins á Rauðarárstíg og er hugsað fyrir þá einstaklinga sem þurfa að vera í sóttkví en eru t.d. fjarri heimili sínu, eins og ferðamenn, eða þá sem af einhverjum ástæðum geta ekki verið á sínu eigin heimili. Almennt er gengið út frá því að fólk sé heima hjá sér í sóttkví.

Í sóttvarnarhúsinu starfa sjálfboðaliðar Rauða krossins sem eru allir sérþjálfaðir að veita sálrænan stuðning og hafa fengið sérstaka þjálfun vegna vinnu sinnar með fólki sem dvelur í sóttkví og einangrun. Slíkur stuðningur getur skipt sköpum á tímum sem þessum.

Gylfi Þór Þor­steins­son, um­sjón­ar­maður sóttvarnarhússins // mynd: mbl.is

Hjálparsíminn 1717

Logo-1717

Sími læknavaktarinnar 1700,  veitir upplýsingar um COVID-19 og skal fólk er finnur fyrir sjúkdómseinkennum veirunnar hafa samband við 1700.

Hjálparsímann 1717 og netspjallið veitir sálrænan stuðning og stendur almenningi til boða allan sólahringinn. Ef fólk finnur fyrir kvíða vegna COVID-19 er alltaf einhver til þess að svara á hjálparsímanum eða netspjallinu.

 

Þá minnir Rauði krossinn á mikilvægi handþvottar og bendir á tilmæli frá landlækni sem koma fram hér að neðan. 

87701617_1791675240963366_8732126880267763712_o

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?